Bloggsvæði Ezterar
Dagsetning
10. febrúar 2012
Heimasíður....
14.08.2007 14:41:18 / -ezter-

14 ágúst...... Þriðjudagur.

Nú er ég komin heim frá ljósmóðurinni og það gekk bara allt mjög vel. Barnið vex ofsa vel og er hjartslátturinn alveg eðlilegur, þó það sé nú ekki búið að hreyfa sig mikið eða svo ég finni fyrir því þá sagði konan að allt væri eins og í sögu og það væri að hreyfa sig á fullu en snýr bara einhvernegin að ég finni ekki jafn mikið fyrir því..:$:$

 En jamm fjölskyldan er að koma heim í nótt eftir langt frí út í Danmerku en þau eru búin að vera þar núna í heilan mánuð og 4 daga. Þau koma eftir miðnætti einhverntíman og kemur hann pabbi með (Samuel barnsfaðirinn). Hann missti af fluginu í morgun sem kemur mér alls ekki á óvart því þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann missir af því en þurftum við að borga auka 25. þús:cry: svo hann gæti nú komið aftur til okkar. Hann er núna búin að vera úti í viku og er maður farin að sakna hans bara pínu lítið. :lol:  Hann keypti upptökumyndavél fyrir mig og íþróttaskó sem ég get nú notað í meðgönguæfingum (líst bara vel á þetta). Svo er mamma búin að kaupa alveg fullt fyrir krílið sem er voða nice því ég er ekki búin að kaupa eitt stykki, er enn að reyna klára fyrsta sokkinn en er bara búin með svona 1/4 af honum og það er 1 og hálfur mánuður síðan ég byrjaði á honum.. Voða dugleg ;);)

En jamm ég ætla að reyna að fara taka til í þessu rusli hérna áður en fólkið kemur heim svo þau geta slakað á..... Kiss kiss og knús..... :!::!::!:


» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Gamalt blogg
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti